17.07.08 - 15:44
Magnús Már Einarsson
Ingþór Jóhann í Árborg (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Knattspyrnufélag Árborgar hefur fengið vængmanninn Ingþór Jóhann Guðmundsson að láni út tímabilið frá 1. deildarliði Selfoss.
Ingþór hefur verið að jafna sig eftir meiðsli sem hann varð fyrir vorið 2007 og hefur ekki náð að vinna sér fast sæti í liði Selfoss í sumar.
Hann hefur þó spilað fjóra leiki með Selfyssingum í deild og bikar og skorað í þeim þrjú mörk. Ingþór á að baki tæplega 150 leiki fyrir Selfyssinga og hefur hann skorað í þeim 44 mörk.
Árborg hefur einnig fengið tvo efnilega leikmenn úr 2. flokki Selfoss, þá Árna Pál Hafþórsson og Hörð Jóhannsson.
Auk þeirra hafa Hafþór Theodórsson úr Aftureldingu og Bjarni Gunnar Jóhannsson úr Ægi skipt yfir til félagsins.