Fotbolti.net
17.07.08 - 17:05
Magnús Már Einarsson

Gilberto Silva til Panathinaikos (Staðfest)

Gilberto Silva til Panathinaikos (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Panathinaikos hefur fengið brasilíska miðjumanninn Gilberto Silva frá Arsenal en þetta staðfesti enska félagið í dag.
Gilberto hefur verið hjá Arsenal síðan árið 2002 og tímabilið 2003/2004 var hann fastamaður þegar að liðið sigraði ensku úrvalsdeildina án þess að tapa leik.

Gilberto lék 244 leiki með Arsenal á ferli sínum en á síðustu leiktíð þurfti hann að verma varamannabekkinn þar sem Mathieu Flamini var á undan honum í liðið.

Flamini er farinn í raðir AC Milan en þrátt fyrir það ákvað Gilberto að skipta um félag.

Þessi 31 árs gamli leikmaður flaug til Grikklands fyrr á dögunum og hefur nú gert þriggja ára samning við Panathinaikos.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.