17.07.08 - 18:29
Magnús Már Einarsson
Sveinn Þór í Hamar á láni frá Grindavík (Staðfest)

Sveinn Þór í leik með Grindavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hamar hefur fengið bakvörðinn Svein Þór Steingrímsson á láni frá Grindavík út tímabilið.
Sveinn Þór hefur leikið sjö leiki með Grindavík í Landsbankadeildinni í sumar og einn leik í Visa-bikarnum.
Hann þekkir til hjá Hamar eftir að hafa leikið með liðinu í þriðju deildinni í fyrra.
Þá skoraði hann fimm mörk í sautján leikjum og hjálpaði liðinu að komast upp úr þriðju deildinni.
Sveinn Þór, sem er 23 ára gamall, hefur lengst af á ferli sínum leikið með Grindavík en hann hefur einnig verið um stund á mála hjá Njarðvík og GG.
Sveinn hefur þegar fengið leikheimild með Hamar og getur því leikið með liðinu gegn Reyni Sandgerði í annarri deildinni annað kvöld.