17.07.08 - 22:32
Arnar Geir Halldórsson
Ronaldinho til AC Milan (Staðfest)

Ronaldinho hress við komuna til Mílanóborgar í gær

Mynd: Getty Images

Einn besti fótboltamaður veraldar er genginn til liðs við ítalska stórveldið AC Milan en Ronaldinho skrifaði undir samning við félagið í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun í Mílanó borg í gær.
Ronaldinho hefur átt erfitt uppdráttar hjá Barcelona upp á síðkastið en hann var valinn Knattspyrnumaður ársins tvö ár í röð, 2004 og 2005. Á ferli sínum hjá Barcelona spilaði Ronaldinho 207 leiki og skoraði í þeim 94 mörk og átti stærstan þátt í meistaratitlum Barcelona tímabilin 2004/2005 og 2005/2006 en seinna tímabilið vann Barcelona einnig Meistaradeild Evrópu.
Pep Guardiola sem tók við stjórnartaumum á Nou Camp í sumar taldi sig ekki hafa not fyrir Ronaldinho enda voru flestir á sama máli um að kappinn ætti sér enga framtíð hjá spænska félaginu eftir seinasta tímabil.
Kaupverðið er talið vera um 15 milljónir punda en gæti hækkað eftir árangri. Manchester City bauð þó mun meira í kappann en Ronaldinho hafnaði enska liðinu.
Ronaldinho, sem er 28 ára gamall, var kynntur fyrir stuðningsmönnum ítalska liðsins á San Siro í dag við hátíðlega athöfn. Fjölmiðlar voru duglegir við að gagnrýna Ronaldinho fyrir líferni sitt seinasta vetur er hann var mikið meiddur og samkvæmt spænskum blöðum stundaði hann djammið grimmt, Ronaldinho vísaði þeim fregnum á bug í dag.
,,Ég hef alltaf lifað heilsusamlegu lífi og mun halda því áfram, ég er í mjög góðu formi. Alla leikmenn dreymir um að spila fyrir AC Milan. Þetta er einstök upplifun og ég vona að ég muni gleðja stuðningsmennina,\" sagði Ronaldinho frammi fyrir fjölda aðdáenda á San Siro í dag.
,,Mér líður strax eins og heima hjá mér. Ég átti frábæran feril með Barcelona, við unnum mikilvæga titla en eftir vonbrigðin undanfarið ákváðum við í sameiningu að leiðir okkar skildu skilja. Það verður spennandi að spila með Kaka, hann er einn af þeim bestu í heiminum. Við erum líka góðir vinir og náum vel saman innan vallar,\"
Ronaldinho gerir þriggja ára samning við AC Milan en þar á bæ binda menn væntanlega vonir um að með komu snillingsins sé gullöld í vændum hjá félaginu eftir fremur mögur ár undanfarið.

Heimild: BBC