Davíð Helgi ekki meira með Keflavík

Lék 14 leiki með Keflavík í deild og bikar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lék 14 leiki með Keflavík í deild og bikar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Helgi Aronsson hefur verið á láni hjá Keflavík frá Víkingi á tímabilinu en hann er, eins og Fótbolti.net greindi frá í gær, á leið til danska félagsins Lyngby á láni. Hann mun ekki spila meira með Keflavík á tímabilinu.
Víkingur hefur kallað hann til baka úr láninu og í kjölfarið fær hann svo félagaskipti til Danmerkur. Kaupmöguleiki verður svo í lánssamningi Davíðs Helga hjá Lyngby.
Víkingur hefur kallað hann til baka úr láninu og í kjölfarið fær hann svo félagaskipti til Danmerkur. Kaupmöguleiki verður svo í lánssamningi Davíðs Helga hjá Lyngby.

TENGT EFNI
Davíð Helgi á leið í dönsku úrvalsdeildina
Davíð Helgi er stæðilegur örvfættur varnarmaður, hann er 19 ára unglingalandsliðsmaður. Hann hefur verið í lykilhlutverki á tímabilinu hjá nýliðum Keflavíkur sem hafa komið á óvart í Bestu deildinni. Hann hefur skorað eitt mark á tímabilinu, skoraði gegn KA á Akureyri.
Lyngby komst upp úr 1. deildinni í Danmörku í vor og spilar sinn fyrsta leik í dönsku úrvalsdeildinni annan sunnudag þegar liðið heimsækir stórlið FCK á Parken.
Keflavík á næst leik gegn ÍA á mánudagskvöld. Fótbolti.net sagði frá því í gær að Keflavík hefði lagt fram tilboð í Ísak Óla Ólafsson sem er miðvörður og fyrirliði FH.
Lyngby komst upp úr 1. deildinni í Danmörku í vor og spilar sinn fyrsta leik í dönsku úrvalsdeildinni annan sunnudag þegar liðið heimsækir stórlið FCK á Parken.
Keflavík á næst leik gegn ÍA á mánudagskvöld. Fótbolti.net sagði frá því í gær að Keflavík hefði lagt fram tilboð í Ísak Óla Ólafsson sem er miðvörður og fyrirliði FH.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 15 | +17 | 32 |
| 3 | Fram | 14 | +12 | 30 |
| 4 | Breiðablik | 14 | +8 | 25 |
| 5 | Valur | 15 | -5 | 19 |
| 6 | Keflavík | 14 | -7 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 14 | -7 | 15 |
| 9 | ÍA | 14 | -9 | 15 |
| 10 | KA | 14 | -8 | 13 |
| 11 | FH | 14 | -11 | 11 |
| 12 | Þór | 14 | -26 | 8 |




