17.09.08 - 17:30
Alexander Freyr Tamimi
Roque Junior til Palmeiras (Staðfest)

Roque Junior snýr aftur til Palmeiras

Mynd: Getty Images

Roque Junior snýr aftur til Palmeiras

Mynd: Getty Images
Brasilíska félagið Palmeiras hefur nælt sér í varnarmanninn Roque Junior frá katarska liðinu Al Rayyan. Er þessi 32 ára fyrrum landsliðsmaður Brasilíu samningsbundinn Palmeiras til loka tímabilsins. Hann spilaði 65 leiki fyrir félagið á árunum 1995 til 1999.
Þjálfari félagsins, Vanderlei Luxemburgo, ákvað að fá leikmanninn til sín eftir að ljóst var að varnarmennirnir Jeci og David yrðu frá í langan tíma vegna alvarlegra meiðsla.
,,Þetta voru neyðarkaup vegna þess að við erum í miklum vandræðum með varnarmenn. En hann er reyndur leikmaður,\" sagði Luxemburgo.
Hann sagði þó að Roque Junior þyrfti að sanna sig til að þagga niður í þeim gagnrýnendum sem efast um líkamlegt form hans.
,,Hann verður að sanna að hann búi yfir þeim kröftum sem þarf til að spila hágæða knattspyrnu. Ég geri mér grein fyrir því hvernig formi hann er í núna.\"
,,Hann er 32 ára en hann getur alveg ennþá spilað fótbolta, hann skortir kannski innblásturinn. Ef hann getur fundið hann aftur mun hann reynast okkur mikilvægur leikmaður.\"
Roque Junior á 48 landsleiki að baki og var hluti af sigurliði Brasilíu á HM 2002. Hann hefur meðal annars spilað með félagsliðunum Leeds, AC Milan og Bayern Leverkusen.