Fotbolti.net
17.10.08 - 13:24
Magnús Már Einarsson

Sheffield United fær Anthony Stokes á láni (Staðfest)

Sheffield United fær Anthony Stokes á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur fengið Anthony Stokes framherja Sunderland á láni í þrjá mánuði.
Þessi tvítugi Íri mun hoppa beint inn í leikmannahóp Sheffield United fyrir grannaslaginn gegn Sheffield Wednesday á sunnudag.

Stokes hóf feril sinn hjá Arsenal en Sunderland keypti hann eftir að leikmaðurinn sló í gegn með Falkirk í Skotlandi þar sem hann var á láni.

Á þessu tímabili hefur Stokes einungis leikið þrjá leiki en hann skoraði tvívegis gegn Northampton í enska deildabikarnum.

Stokes getur einnig leikið á vinstri kantinum og ekki er ólíklegt að hann verði notaður þar fyrst um sinn hjá Sheffield United.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.