Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. október 2020 21:46
Victor Pálsson
Bruce: Þetta var erfitt fyrir okkur
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Newcastle, viðurkennir að hans menn hafi verið í vandræðum gegn Manchester United í dag.

Man Utd fór á kostum í seinni hálfleik á St. James' Park og vann 4-1 sigur eftir að hafa lent 1-0 undir.

Bruce segir að verkefnið hafa verið erfitt fyrir hans menn en bjóst við erfiðum köflum á leiktíðinni á sama tíma.

„Þetta var mjög erfitt fyrir okkur, það er ekki hægt að þræta fyrir það," sagði Bruce eftir leikinn.

„Þeir geta gert liðum þetta. Ef þú skilur eftir þig pláss þá eru þeir með öskufljóta leikmenn fremst á vellinum."

„Þetta er allt í vinnslu hjá okkur, við munum lenda í hindrunum en vinnum í að verða betri."

Athugasemdir
banner
banner