Fotbolti.net
17.11.19 - 10:30
Brynjar Ingi Erluson

Scott Brown: Van Dijk er Rolls Royce

Scott Brown og Virgil van Dijk voru liðsfélagar hjá Celtic

Scott Brown og Virgil van Dijk voru liðsfélagar hjá Celtic

Canon

Mynd: Getty Images

Scott Brown, fyrirliði Celtic í Skotlandi, segir magnaðar framfarir Virgil van Dijk ekki koma sér á óvart.
Brown og Van Dijk voru liðsfélagar hjá Celtic frá 2013 til 2015 áður en hollenski varnarmaðurinn var seldur til Southampton.

Það kom Brown hins vegar á óvart að það hafi ekki stærra lið en Southampton reynt að fá hann fyrir fjórum árum.

„Virgil van Dijk er Rolls Royce. Það var ekkert vandamál fyrir hann að vera bestur í Skotlandi og nú er hann að gera það sama í ensku úrvalsdeildinni og hefur nú sýnt það að hann er besti varnarmaður heims," sagði Brown.

„Það sem við erum að sjá frá honum kemur mér ekkert á óvart. Það eina sem kom mér á óvart þegar hann fór frá Celtic er það að Southampton var eina liðið sem vildi fá hann," sagði hann í lokin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.