Fotbolti.net
17.12.08 - 15:05
Hafliði Breiðfjörð

Sam Allardyce tekinn við Blackburn (Staðfest)

Sam Allardyce.

Sam Allardyce.

Canon

Mynd: Getty Images

Sam Allardyce hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Blackburn og hefur hann skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Allardyce tekur við starfinu af Paul Ince sem var látinn taka pokann sinn í gær.
Allardyce sem er fyrrverandi stjóri Bolton og Newcastle hefur ekki farið leynt með að hann vilji snúa aftur í knattspyrnustjórn síðan hann hætti hjá Newcastle í janúar.

Hann er 54 ára gamall og var orðaður við Blackburn í sumar auk Steve McClaren fyrrverandi landsliðsþjálfara Englands en þá ákvað félagið að ráða Paul Ince í stað þeirra.

Graeme Souness sem stýrði Blacbkurn frá 2000-2004 var orðaður við starfið en hann útilokaði í morgun að hann tæki við liðinu.

Blackburn mætir Stoke á laugardaginn en Allardyce bíður verðugt verkefni að koma liðinu úr fallsæti.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.