Fotbolti.net
17.12.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Haraldur Axel Einarsson í Njarðvík (Staðfest)

Haraldur Axel Einarsson í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Njarðvík

Njarðvík hefur fengið kantmanninn Harald Axel Einarsson til liðs við sig frá Víði Garði.
Haraldur er uppalinn hjá Keflavík en hann hefur leikið með Víði frá því 2004 ef undanskilið er árið 2005 þegar að hann var hjá ÍR.

Síðastliðið sumar skoraði hann níu mörk í tuttugu leikjum með Víði í annarri deildinni en árið áður skoraði hann sex mörk.

Haraldur Axel heur alls skorað 45 mörk í 130 leikjum í mótum á vegum KSÍ.

Hann er annar leikmaðurinn sem Njarðvík fær til liðs við sig í vetur en á dögunum kom Viktor Guðnason til félagsins frá Keflavík.

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.