18.02.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Kristján Óli Sigurðsson í Hauka (Staðfest)

Kristján Óli í leik með Selfyssingum sumarið 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Kristján Óli Sigurðsson skrifaði í vikunni undir eins árs samning við Hauka.
Þessi 29 ára gamli kantmaður hefur æft með Haukum að undanförnu og nú er ljóst að hann mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
,,Mig langaði aftur í úrvalsdeildina og líst mjög vel á þjálfarateymið og leikmannahópinn,\" sagði Kristján Óli við Fótbolta.net í kvöld.
Kristján Óli lék í mörg ár með Breiðablik áður en hann gerðist spilandi þjálfari hjá Hvöt sumarið 2008.
Á miðju sumri gekk hann til liðs við Selfyssinga og á síðustu leiktíð lék hann síðan með Reyni Sandgerði þar sem hann skoraði fjögur mörk í átján leikjum í annarri deildinni.