18.02.10 - 16:09
Magnús Már Einarsson
Fannar Örn Kolbeinsson í Val (Staðfest)

Fannar í leik með Tindastól síðastliðið sumar.

Mynd: Valgeir Kárason

Fannar Örn Kolbeinsson hefur gengið til liðs við Val en hann kemur til félagsins frá Tindastól.
Fannar Örn er 17 ára miðjumaður en hann getur eining leyst aðrar stöður á vellinum.
,,Við erum að fá hann inn sem framtíðarmann, hann verður fyrir norðan til að klára skólann þar fram á vor en kemur svo í bæinn eftir skólalok,” sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari Vals við Fótbolta.net í dag.
,,Hann kemur til með að spila með 2. flokk og svo er aldrei að vita hvað gerist. Hann mun verða viðloðandi meistaraflokkinn svo er þetta undir honum komið.\"
Fannar Örn hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Tindastóls undanfarin tvö ár en í fyrra spilaði hann fimmtán leiki í annarri deildinni.