Fotbolti.net
18.03.10 - 17:15
Hafliði Breiðfjörð

Torger Motland í FH (Staðfest)

FH er komið með norskan framherja.

FH er komið með norskan framherja.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Norski framherjinn Torger Motland er genginn til liðs við Íslandsmeistara FH en þetta var staðfest á FHingar.net í dag.
Motland hafði æft með FH á reynslu fyrr í mánuðinum. Hann verður 25 ára gamall 26. mars næstkomandi.

Hann hefur að undanförnu verði á mála hjá Stavanger IF í heimalandi sínu en það lið endaði í 15. og næst neðsta sæti norsku 1. deildarinnar á síðustu leiktíð.

Áður hefur hann leikið með Viking í Stavanger, Riska FK, Sadnes, Ulf og Bryne þar sem hann var á láni tímabilið 2005-2006.

Hann spilaði með FH í æfingaleik gegn Breiðablik á síðasta föstudag þar sem FH liðið náði sér ekki á strik og tapaði 0-3.

Heimild: FHingar.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.