Þeir Daníel Tristan Guðjohnsen (2006) og Gísli Gottskálk Þórðarson (2004) verða með U21 landsliðinu í komandi landsleikjaglugga. U21 landsliðið á leiki gegn Eistlandi og Frakklandi í undankeppni HM. Daníel og Gísli hafa verið með A-landsliðinu í síðustu landsleikjagluggum.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari A-landsliðsins, var á fréttamannafundi spurður út í Viktor Bjarka Daðason (2008) sem skoraði þrjú mörk í Meistaradeildinni í vetur. Hann var hvorki valinn í A-landsliðið í nóvember né fyrir komandi leiki. Hann verður ásamt Daníel og Gísla í U21 landsliðinu. Arnar útskýrði ákvörðun sína.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari A-landsliðsins, var á fréttamannafundi spurður út í Viktor Bjarka Daðason (2008) sem skoraði þrjú mörk í Meistaradeildinni í vetur. Hann var hvorki valinn í A-landsliðið í nóvember né fyrir komandi leiki. Hann verður ásamt Daníel og Gísla í U21 landsliðinu. Arnar útskýrði ákvörðun sína.
„Gísli Gotti og Daníel Tristan hafa verið með okkur (í A-landsliðinu). Málið er a U21 landsliðið er að spila mjög flotta leiki í þessum glugga, á móti Eistlandi og svo stórleik á móti Frökkum. Það er alltaf þetta samtal milli þjálfara og yfirmanns fótboltamála um hvað eigi að gera. Núna töldum við að við þyrftum á þeim að halda í U21 glugganum. Þeir tóku því bara mjög vel, vilja massa þennan glugga með U21 og sýna að þeir séu A-landsliðsmenn. Þeir þurfa að sýna það með því að spila á ákveðnu getustigi í þeim leikjum. Þetta varð tiltölulega auðveld ákvörðun þegar við fórum yfir kosti og galla," sagði Arnar. A-landsliðið spilar vináttuleiki gegn Kanada og Haítí í Kanada í komandi landsleikjaglugga.
„Ég sá Viktor Bjarka persónulega á Nou Camp skora frábært mark (á móti Barcelona í Meistaradeildinni). Svo lenda ungir leikmenn oft í því að það koma upp og niðursveiflur. Liðinu (FC Kaupmannahöfn) er að ganga mjög illa, það er kröfuhart lið í Kaupmannahöfn og hann er búinn að spila aðeins minna núna. Heilt yfir, fyrir 17 ára strák, þá er ekkert annað en stórkostlegt það sem hann hefur áorkað síðast tólf mánuði. Við fylgjumst vel með honum og vonandi mun hann sýna góða og sterka leiki með U21 liðinu núna," sagði Arnar á fréttamannafundinum í dag.
Í viðtali við Fótbolta.net var Arnar spurður út í Viktor Bjarka. Þú sást hann skora með FCK á Nou Camp, er erfitt að réttlæta að hann sé ekki í hópnum?
„Ég held að fáum Íslendingum hafi tekist að skora á móti Barcelona - gæti verið að einhverjum Framara hafi tekist það á sínum tíma í Evrópukeppninni."
„Þú þarft stanslaust að líta á heildarmyndina. Viktor hefði mögulega komið í þennan hóp, mögulega spilað 90 mínútur en mögulega eina mínútu. U21 landsliðið er í harðri baráttu og þeir eru að spila á móti Frökkum sem er alvöru leikur. Þetta snýst um að taka ákvörðun sem er öllum til góðs. Sem þjálfari félagsliðs ertu bara að hugsa um félagið, en sem landsliðsþjálfari ertu að hugsa um íslenskan fótbolta í heild sinni. Ég held að þetta verkefni fyrir Viktor Bjarka, Gísla Gotta og Daníel muni reynast betra þegar fram líða stundir," sagði Arnar í viðtalinu sem nálgast má í spilaranum hér að neðan.
Athugasemdir



