18.04.09 - 20:45
Alexander Freyr Tamimi
Anika Laufey Baldursdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan hefur fengið Aniku Laufey Baldursdóttur til liðs við sig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Stjörnunnar hefur gengið frá tveggja ára samningi við hina sautján ára Aniku Laufey Baldursdóttur, en hún kemur til liðsins frá Breiðabliki.
Anika spilaði nokkra leiki fyrir Breiðablik í Landsbankadeild kvenna á síðasta tímabili og á hún auk þess tvo u-17 landsleiki að baki. Hún spilar stöðu hægri kantmanns.
Anika er sjöundi leikmaðurinn sem hefur komið til liðsins frá því að síðasta tímabili lauk en áður hafði Hrefna Huld Jóhannesdóttir komið frá KR, Lilja Íris Gunnarsdóttir frá Keflavík og þær Íris Ósk Valmundsdóttir, Helga Franklínsdóttir og Kristrún Kristjánsdóttir frá Fjölni. Einnig fékk liðið Önnu Björk Kristjánsdóttur frá KR.