Fotbolti.net
18.04.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Aleksander Linta tekur við Grundarfirði (Staðfest)

Aleksander Linta tekur við Grundarfirði (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Aleksandar Linta hefur verið ráðinn þjálfari hjá Grundarfirði sem leikur í þriðju deild karla.
Linta, sem er 37 ára vinstri bakvörður, hefur leikið á Íslandi um árabil en í fyrra spilaði hann sextán leiki í Pepsi-deildinni í sumar.

Linta hefur verið í Serbíu undanfarna mánuði að ná sér í þjálfararéttindi og nú mun hann þjálfa Grundfirðinga í sumar.

Linta hefur verið í herbúðum Þórs frá árinu 2008 en hann hefur einnig leikið með KA, ÍA og Víkingi Ólafsvík.

Hann á að baki 173 meistaraflokks leiki á Íslandi og hefur skorað 25 mörk í þeim leikjum.

Heimild: Heimasíða Grundarfjarðar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.