18.04.12 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool fær ungan leikmann frá Crewe (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur fest kaup á miðjumanninum Dan Smith frá Crewe Alexandra.
Smith, sem er 16 ára gamall, var nálægt því að ganga til liðs við Manchester City síðasta sumar en félagaskiptin gengu ekki í gegn.
Liverpool og Crewe komust að samkomulagi um leikmanninn í dag, en talið er að kaupverðið liggi öðru hvoru megin við 300 þúsund pundin. Upphæðin hækkar, komi leikmaðurinn til með að leika með aðalliðinu í framtíðinni.
Hann fetar því í fótspor þeirra Danny Murphy og Rob Jones, sem léku hjá Liverpool við góðan orðstír, en þeir voru hjá Crewe áður en þeir sömdu við Liverpool á sínum tíma.

Heimild: BBC