Fotbolti.net
18.04.23 - 13:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jói Kalli verður aðstoðarmaður Hareide (Staðfest)

Age Hareide og Jóhannes Karl Guðjónsson.

Age Hareide og Jóhannes Karl Guðjónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Jóhannes Karl Guðjónsson verður aðstoðarþjálfari Age Hareide með íslenska landsliðið.

Þetta var kynnt á fréttamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ rétt í þessu.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, sagði frá því í viðtali við Fótbolta.net fyrir síðustu helgi að sambandið hefði áhuga á því að halda Jóa Kalla í starfi en Hareide myndi ákveða sjálfur sinn aðstoðarmann.

Hareide staðfesti það á fréttamannafundi að Jói Kalli yrði áfram aðstoðarþjálfari. Þeir hefðu rætt málin, tekið góðan fund og náð vel saman. Hareide lýsti Jóhannesi sem ungum og spennandi þjálfara.

Jóhannes Karl var ráðinn aðstoðarþjálfari Íslands á síðasta ári og starfaði með Arnari Þór Viðarssyni. Hann er fyrrum landsliðsmaður og fyrrum þjálfari ÍA.

Hareide sagði á fundinum að hann ætlaði að styrkja njósnateymið en aðrar breytingar væru ekki alveg ákveðnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.