Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
banner
laugardagur 27. júlí
Lengjudeild karla
Besta-deild karla
mánudagur 22. júlí
Besta-deild karla
föstudagur 19. júlí
Lengjudeild kvenna
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
þriðjudagur 16. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 15. júlí
Besta-deild karla
sunnudagur 14. júlí
Úrslitaleikur EM
Besta-deild karla
föstudagur 12. júlí
Undankeppni EM kvenna
þriðjudagur 9. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
mánudagur 8. júlí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
mánudagur 1. júlí
Lengjudeild kvenna
laugardagur 29. júní
Mjólkurbikar kvenna
laugardagur 27. júlí
Engin úrslit úr leikjum í dag
fim 18.apr 2024 14:00 Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 6. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Þróttur Reykjavík muni enda í sjötta sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Ef spáin rætist þá verða Þróttarar síðasta liðið í efri hluta deildarinnar eftir skiptingu.

Þrótti er spáð sjötta sæti.
Þrótti er spáð sjötta sæti.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Kristjánsson er nýr þjálfari Þróttar.
Ólafur Kristjánsson er nýr þjálfari Þróttar.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði.
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði.
Mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Sæunn Björnsdóttir er í nýju hlutverki.
Sæunn Björnsdóttir er í nýju hlutverki.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jelena Tinna Kujundzic, sterk í vörninni.
Jelena Tinna Kujundzic, sterk í vörninni.
Mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Freyja Karín Þorvarðardóttir, öflugur markaskorari.
Freyja Karín Þorvarðardóttir, öflugur markaskorari.
Mynd/Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Leah Maryann Pais er bandarískur sóknarmaður sem gekk í raðir Þróttar í vetur.
Leah Maryann Pais er bandarískur sóknarmaður sem gekk í raðir Þróttar í vetur.
Mynd/Þróttur R
Sigríður Theódóra er efnileg fótboltakona.
Sigríður Theódóra er efnileg fótboltakona.
Mynd/Þróttur R.
Sóley María hefur lengi staðið vaktina í vörn Þróttar.
Sóley María hefur lengi staðið vaktina í vörn Þróttar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gera Þróttarar í sumar?
Hvað gera Þróttarar í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Þróttur R., 60 stig
7. Víkingur R., 45 stig
8. Tindastóll, 25 stig
9. Fylkir, 22 stig
10. Keflavík, 14 stig

Um liðið: Það eru nýir tímar í Laugardalnum. Þróttarar hafa í vetur gengið í gegnum talsvert miklar breytingar frá síðasta tímabili, bæði á leikmannahópi og þjálfarateymi. Fyrir fram er Þróttur eitt áhugaverðasta liðið í deildinni og verður gaman að sjá hvernig þetta nýja verkefni tekst upp. Liðinu er ekki spáð eins góðu gengi og í fyrra, en Þróttarar ætla sér að afsanna þessa spá. Það er alveg klárt mál.

Þjálfarinn: Prófessorinn Ólafur Kristjánsson er mættur í Laugardalinn og tekinn við Þrótti. Hann tekur við starfinu af Nik Chamberlain sem var ráðinn þjálfari Breiðabliks, en Nik hafði starfað sem þjálfari Þróttar frá 2016. Ólafur var síðast hjá Breiðabliki sem yfirmaður fótboltamála en hann hefur á sínum þjálfaraferli stýrt Fram, Breiðabliki, Nordsjælland, Randers, Esbjerg og FH. Hann hefur aldrei áður þjálfað kvennalið fyrr en núna en hann sagði í viðtali við Fótbolta.net í október síðastliðnum að ætti nokkra eftir í þjálfun og að þjálfa í kvennaboltanum væri eitt þeirra. „Það var ekki margt sem gat togað mig í að þjálfa aftur," sagði Ólafur en verkefnið hjá Þrótti togaði í hann.

Fótbolti.net fær sérfræðingana Jón Stefán Jónsson og Lilju Dögg Valþórsdóttur til að rýna í styrkleika, veikleika og annað hjá liðunum sem spila í Bestu deildinni í sumar. Jón Stefán, sem er fyrrum þjálfari Tindastóls og Þórs/KA fer yfir það helsta hjá Þrótturum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Styrkleikar: Það er held ég örugglega óhætt að segja að einn af mestu styrkleikum Þróttar liðsins í ár liggi í þjálfaranum, Ólafi Kristjánssyni. Óli er einfaldlega einn af okkar allra fremstu og reynslumestu þjálfurum og það verður ótrúlega spennandi að fylgjast með honum taka sín fyrstu skref í meistaraflokki kvenna. Það gæti hreinlega virkað sem vítamínsprauta á þá leikmenn liðsins sem hafa verið í langan tíma þar að fá nýjan þjálfara með sennilega bestu ferilskrá sem sést hefur í íslenskum kvennafótbolta. Þetta segi ég fullum fetum þó svo að auðvitað hafi Nik gert frábæra hluti áður en hann hvarf á braut til Breiðabliks í haust. Meira um það síðar. Þó svo að liðið sé kannski meira spurningarmerki en undanfarin ár, þá liggja styrkleikar Þróttar á þekktum slóðum, það er í skipulögðum leik, bæði sóknar- og varnarlega. Margir leikmenn hafa spilað lengi saman þó vissulega hafi kvarnast töluvert úr liði síðasta árs.

Veikleikar: Það er svo sem ekki erfitt að horfa á komnar/farnar lista Þróttar og hugsa að veikleikar þeirra muni einfaldlega liggja í því að þær hafi misst risa risastóra pósta úr sínu liði í Ólöfu Sigríði Kristinsdóttur, Katie Cousins og Kötlu Tryggvadóttur. Þeirra skarð er enginn hægðarleikur að fylla en reyndar er ekkert sem bendir til þess að liðið verði í vandræðum með sóknarleikinn ef horft er á undirbúningstímabilið; liðið skoraði þar að meðaltali þrjú mörk í leik. Hins vegar fékk liðið á sig 14 mörk og því virðist vera sem varnarleikurinn sé höfuðverkur númer eitt. Það var slæmt fyrir Þrótt að missa landsliðskonuna Írisi Dögg Gunnarsdóttur og það gæti tekið tíma fyrir nýjan markvörð liðsins, Mollee Swift, að aðlagast íslenskum aðstæðum. En mér skilst að mikill stígandi hafi verið í leik hennar. Hún verður samt að vera klár í slaginn frá byrjun, því Þróttarar eru góðu vanir frá fyrri árum.

Lykilmenn: Sæunn Björnsdóttir er algjör lykilmaður í liði Þróttar en hana þarf vart að kynna fyrir lesendum. Feykilega líkamlega sterkur og duglegur leikmaður sem hefur bundið miðju Þróttar saman undanfarin ár en er nú í nýju hlutverki í varnarlínu liðsins og mun eflaust binda vörnina saman af sama myndarskap.
Ekki er hægt að horfa framhjá fyrirliða liðsins, Álfhildi Rósu Kjartansdóttur sem ásamt Sæunni myndar hjarta liðsins á miðjunni að ógleymdu því að vera gífurlega leikreynd þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára í ár. Til að setja hlutina í samhengi á hún tæplega 200 leiki fyrir félagið í meistaraflokki. Loks er vert að minnast á Jelenu Tinnu Kujundzic sem er alltaf traust í vörn Þróttar og verður það eflaust áfram. Það fer kannski ekki mikið fyrir henni en hún er alltaf „solid“.

Leikmaður sem á að fylgjast með: Ég mæli með að fólk fylgist með Freyju Karín Þorvarðardóttur í sumar. Freyja hefur litið vel út á undirbúningstímabilinu og þessi klóka sóknarkona skorar alltaf mörk. Hún gæti sprungið út í sumar undir stjórn Óla.

Komnar:
Sigríður Theód. Guðmundsdóttir frá Val
Kristrún Rut Antonsdóttir frá Selfossi
Íris Una Þórðardóttir frá Selfossi
Leah Maryann Pais frá Kanada
Mollee Swift frá Bandaríkjunum
Caroline Murray frá Danmörku

Farnar
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir til Spánar
Íris Dögg Gunnarsdóttir í Val
Katla Tryggvadóttir til Svíþjóðar
Katie Cousins í Val
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir til Breiðabliks
Tanya Laryssa Boychuk til Svíþjóðar
Margrét Edda Lian Bjarnadóttir til Gróttu
Ragnheiður Ríkharðsdóttir í KR



Dómur Jónsa fyrir gluggann: Úff, erfitt að segja að hann sé góður, það verður að viðurkennast að missa þrjá gífurlega mikilvæga leikmenn fyrir sóknarleik liðsins í þeim Kötu, Katie og Ólöfu Sigríði ásamt því að missa landsliðsmarkvörð í Írisi Dögg er svakalega mikið skarð. Á hinn bóginn gerðu Þróttarar mjög sniðug kaup í Sigríði Theódóru Guðmundsdóttur. Einnig virðist vera sem útlendingakaup liðsins hafi gengið upp. Mér finnst samt óeðlilegt að gefa þessum glugga meira en fjóra. Liðið hefur einfaldlega misst of stóra bita til að gefa aðra einkun hér.

Fyrstu fimm leikir Þróttar R.:
22. apríl, Fylkir - Þróttur R. (Würth völlurinn)
27. apríl, Þróttur R. - Valur (AVIS völlurinn)
2. maí, Þór/KA - Þróttur R. (VÍS völlurinn)
8. maí, FH - Þróttur R. (Kaplakrikavöllur)
15. maí, Þróttur R. - Víkingur R. (AVIS völlurinn)

Í besta og versta falli: Í versta falli verður Þróttur í sjötta sæti en neðar verða þær held ég aldrei. Í besta falli slást þær um þriðja sætið í þeim jafna pakka sem liðin í þriðja til sjötta sæti munu skipa að öllum líkindum.

Spámennirnir: Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hulda Mýrdal, Lilja Dögg Valþórsdóttir, Mist Rúnarsdóttir, Orri Rafn Sigurðarson, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson, Steinke.
Athugasemdir
banner