banner
   þri 18. maí 2021 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bestu leikmennirnir í mögnuðu liði Barcelona
Alexia Putellas.
Alexia Putellas.
Mynd: EPA
Jennifer Hermoso.
Jennifer Hermoso.
Mynd: EPA
Caroline Graham Hansen.
Caroline Graham Hansen.
Mynd: EPA
Marta Torrejon.
Marta Torrejon.
Mynd: EPA
Barcelona hefur átt magnað tímabil í kvennaboltanum sem var fullkomnað með sigri í Meistaradeildinni á sunnudag.

Barcelona vann mjög sannfærandi sigur á Chelsea á sunnudagskvöld. Barcelona mættu mjög áræðnar til leiks en það er ekki hægt að segja það sama um Chelsea; Englandsmeistararnir mættu einfaldlega ekki til leiks.

Barcelona komst yfir strax á fyrstu mínútur með ótrúlega klaufalegu sjálfsmarki Chelsea. Fran Kirby ætlaði að hreinsa en setti boltann í Melanie Leupolz og þaðan fór boltinn í markið. Hrikalega klaufalegt en það var bara byrjunin.

Á tólftu mínútu fékk Barcelona vítaspyrnu, frekar 'soft' vítaspyrnu en dómarinn dæmdi og Alexia Putellas skoraði.

Svo skoraði Aitiana Bonmati þriðja markið á 20. mínútu. „Chelsea hefur engin svör," sagði Margrét Lára Viðarsdóttir í útsendingu Stöð 2 Sport 2. Það var svo sannarlega rétt því fjórða markið kom á 36. mínútu. Það gerði hin norska Caroline Graham Hansen. Sú norska fór ansi illa með Jessica Carter, sem lék í bakverði hjá Chelsea.

Staðan var 4-0 í hálfleik og leikurinn í raun búinn. Barcelona varðist bara vel í seinni hálfleiknum og landaði sigrinum.

Barcelona er fyrsta fótboltafélagið sem vinnur bæði Meistaradeild karla og Meistaradeild kvenna, og þvílíkt tímabil sem þetta lið hefur átt.

Barcelona hefur unnið alla leiki sína í deildinni heima fyrir, 26 talsins. Liðið er búið að vinna deildina heima. Heilt yfir hefur liðið spilað 37 leiki og aðeins tapað einum þeirra, en það var gegn Manchester City í Meistardeildinni. Barcelona hefur í þessum 37 leikjum skorað 161 mark og fengið á sig 13. Magnaður árangur hjá mögnuðu liði.

En hvaða leikmenn eru það sem skara fram úr þarna? Fótbolti.net tók saman fimm leikmenn sem eru ótrúlega góðar í fótbolta og hafa átt stórgott tímabil.

Alexia Putellas
Andres Iniesta hefur kallað Putellas „fulltrúa Barcelona". Putellas er 27 ára gömul og ólst upp hjá Barcelona. Hún þekkir félagið inn og út, og er gríðarlega hæfileikarík á miðsvæðinu. Á þessu tímabili hefur hún spilað stórt hlutverk. Í deildinni er hún til að mynda búin að skora 16 mörk í 25 leikjum. Hún skoraði í úrslitaleiknum og átti frábæran leik. Gríðarlega mikilvæg í leikstíl Barcelona sem gengur mikið út á pressu og sendingar.

Jennifer Hermoso
Hún skoraði ekki í úrslitaleiknum en þessi sóknarmaður er baneitruð fyrir framan markið. Hún hefur skorað hvert sem hún hefur farið og á þessu tímabili er hún búin að skora 21 mark í 20 leikjum í deildinni. Jafnframt gerði hún sex mörk í sjö leikjum í Meistaradeildinni.

Caroline Graham Hansen
Magnaður leikmaður sem Jessica Carter, bakvörður Chelsea, réð ekkert við. Hún mun fá martraðir um Graham Hansen á næstu vikum. Þessi norska landsliðskona er enn bara 26 ára gömul og hún á mörg ár eftir af fótboltaferlinum.

Marta Torrejón
Varnarmaður sem er ein af eldri leikmönnum í liði Barcelona. Hefur verið fyrirliði spænska landsliðsins og það er gott að hafa svona leikmann í vörninni; leiðtoga.

Lieke Mertens
Þegar þú ert með Caroline Graham Hansen á öðrum kantinum og Lieke Martens hinum megin, þá veistu að þú ert í góðum málum. Ótrúlega miklir hæfileikar og hún gerði allt í úrslitaleiknum nema að skora. Var líklega besti maður vallarins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner