Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 18. maí 2022 22:35
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: Öruggt hjá Fram í opnunarleiknum
Framarar unnu góðan sigur á KÁ
Framarar unnu góðan sigur á KÁ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KÁ 0 - 3 Fram
0-1 Ylfa Margrét Ólafsdóttir ('23 )
0-2 Ylfa Margrét Ólafsdóttir ('26 )
0-3 Erika Rún Heiðarsdóttir ('84 )

Fram og KÁ áttust við í opnunarleik 2. deildar kvenna á Ásvöllum í dag en gestirnir höfðu sigur, 3-0.

Ylfa Margrét Ólafsdóttir gerði fyrstu tvö mörk leiksins með þriggja mínútna millibili en fyrra markið kom á 23. mínútu áður en hún gerði annað á 26. mínútu.

Fyrirliði Fram, Erik Rún Heiðarsdóttir, gerði svo þriðja og síðasta mark leiksins sex mínútum fyrir leikslok og þar við sat.

Fram byrjar því mótið á góðum sigri en næsti leikur liðsins er gegn ÍA eftir sex daga á meðan KÁ spilar næst við KH eftir tæpar þrjár vikur eða þann 1. júní.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner