Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Alexander-Arnold spenntur fyrir HM
Mynd: Real Madrid
Trent Alexander-Arnold nýr bakvörður Real Madrid er gríðarlega spenntur fyrir HM félagsliða.

Madrídingar spila þar sína fyrstu keppnisleiki undir stjórn Xabi Alonso eftir vonbrigðatímabil með Carlo Ancelotti við stjórnvölinn á síðustu leiktíð.

Alexander-Arnold gekk til liðs við Real Madrid á frjálsri sölu í sumar og keypti félagið einnig Dean Huijsen úr röðum Bournemouth. Þeir gætu verið í byrjunarliði Real gegn Al-Hilal á morgun en Madrídingar eru einnig í riðli með RB Salzburg og Pachuca.

„Þetta hefur verið góð byrjun fyrir okkur nýju strákana. Við Dean (Huijsen) erum búnir að vera í kringum leikmannahópinn í nokkra daga í frábærum aðstæðum, það hjálpar mikið við aðlögunarferlið. Við erum að læra inn á hvora aðra og mjög spenntir fyrir að byrja mótið," sagði Alexander-Arnold á fréttamannafundi í dag. „Hala Madrid!"

Alexander-Arnold er uppalinn hjá Liverpool og spilaði 354 keppnisleiki fyrir félagið áður en hann ákvað að flytja til Madrídar.

Hluti stuðningsmanna Liverpool er ósáttur með að bakvörðurinn hafi ákveðið að fara frá félaginu á frjálsri sölu.
Athugasemdir
banner
banner