Fotbolti.net
18.07.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ragnar Smári Guðmundsson í Víði (Staðfest)

Ragnar í leik með Víkingi í fyrra.

Ragnar í leik með Víkingi í fyrra.

Canon

Mynd: Leiknir.com/Matthías Ægisson

Víðir Garði hefur fengið miðjumanninn Ragnar Smára Guðmundsson til liðs við sig.
Ragnar Smári hefur leikið með Víkingi Ólafsvík undanfarin ár en hann hefur reyndar ekkert leikið með liðinu í ár.

Ragnar lék hins vegar í vor tvo leiki í Visa-bikarnum með Grundafirði.

Þessi 22 ára gamli leikmaður lék fyrst með meistaraflokki Víkings árið 2003 en í fyrra skoraði hann þrjú mörk í nítján leikjum í fyrstu deildinni.

Víðir er sem stendur í þriðja sætinu í annarri deildinni en liðið mætir Hetti á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.