18.07.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Trausti Eiríksson og Brynjar Sverrisson í Hvöt (Staðfest)

Trausti Eiríksson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Hvöt úr annarri deild hefur fengið tvo leikmenn frá Þrótti til liðs við sig. Páll Einarsson, fyrrum leikmaður Þróttar, er þjálfari Hvatar og hann hefur fengið tvo leikmenn frá sínu gamla félagi.
Trausti Eiríksson, tvítugur kant og sóknarmaður, kemur á láni til Hvöt út tímabilið en hann lék einn leik í fyrstu deildinni í fyrra. Trausti hefur verið nokkrum sinnum í leikmannahópi Þróttar í Landsbankadeildinni í sumar en ekki komið við sögu.
Þá hefur Hvöt fengið sóknarmanninn Brynjar Sverrisson en hann hefur reyndar ekkert leikið með Þrótti síðan sumarið 2002 þegar hann skoraði ellefu mörk í þrettán leikjum í fyrstu deildinni.
Brynjar skoraði sjö mörk fyrir Stjörnuna 2003 og lék nokkra leiki með Garðabæjarliðinu 2005 en síðan þá hefur hann ekki komið við sögu á Íslandsmótinu þrátt fyrir að hafa fengið félagaskipti í Þrótt haustið 2005.
Hvöt mætir Völsungi í annarri deildinni í kvöld en báðir leikmennirnir eru löglegir og geta leikið þann leik.