18.07.08 - 09:52
Magnús Már Einarsson
LuaLua semur við félag í Katar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Lomana LuaLua hefur gert eins árs samning við Al Arabi í Katar.
Þessi 27 ára gamli framherji kemur til Al Arabi eftir eins árs dvöl hjá Olympiakos á Grikklandi.
LuaLua lék með Colchester og Newcastle á Englandi áður en hann fór til Portsmouth.
Hann fór síðan frá Portsmouth til Olympiakos á síðasta ári og skoraði sex mörk í 30 leikjum í Grikklandi.
LuaLua mun að öllum líkindum koma til móts við Al Arabi í næsta mánuði en þá verður liðið í æfingabúðum í Tyrklandi.

Heimild: Sporting Life