18.07.08 - 13:15
Magnús Már Einarsson
Viðar Guðjónsson gengur í raðir Fram (Staðfest)

Viðar í leik með Fylki gegn Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðar í leik með Fylki gegn Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Viðar Guðjónsson hefur gengið í raðir Fram og hefur samið við félagið út tímabilið.
Viðar yfirgaf Fylki á dögunum en þessi 28 ára gamli leikmaður er uppalinn Framari.
Hann lék sinn fyrsta leik í efstu deild árið 1998 og var í röðum Fram þar til hann gekk til liðs við Víking Reykjavík síðastliðið sumar.
Hann lék með liðinu í Landsbankadeildinni en síðastliðið haust ákvað Viðar síðan að ganga í raðir Fylkis.
Viðar fékk hins vegar fá tækifæri hjá Fylki og yfirgaf félagið á dögunum.
Næsti leikur Framara í Landsbankadeildinni er gegn Fylki á mánudag en ekki er orðið ljóst hvort Viðar verði kominn með leikheimild fyrir þann leik.

Heimild: Heimasíða Fram