Fotbolti.net
18.07.08 - 14:05
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Ludovic Giuly til PSG (Staðfest)

Ludovic Giuly til PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Paris Saint Germain hefur gengið frá kaupum á Ludovic Giuly en hann kemur til félagsins frá Roma.
PSG hefur verið á eftir Giuly í allt sumar og nú hefur verið gengið frá samningum.

Giuly, sem er 32 ára, ku hafa gert þriggja ára samning við félagið eftir að hafa staðist læknisskoðun.

Þessi fyrrum leikmaður Barcelona hafði viljað komast í burtu frá Roma eftir að hafa fallið niður goggunarröðina hjá liðinu.

Giuly er annar leikmaðurinn sem PSG fær í sumar en áður hafði félagið fengið Stephane Sessegnon frá Le Mans.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.