Fotbolti.net
18.07.08 - 15:02
Magnús Már Einarsson

Scott Carson til WBA (Staðfest)

Scott Carson til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur keypt Scott Carson markvörð Liverpool á 3,25 milljónir punda.
Carson hefur skrifað undir fjögurra ára samning við WBA með möguleika á framlengingu en félagið hafið betur í baráttu við Stoke um leikmanninn.

Liverpool fékk brasilíska markvörðinn Diego Cavaleri á dögunum og þar með var ljóst að Carson gæti yfirgefið félagið.

Carson, sem er 22 ára gamall, mun berjast við Dean Kiley um markvarðarstöðuna hjá WBA.

Carson er sjöundi leikmaðurinn sem WBA fær í sumar en áður höfðu Roman Bednar, Luke Moore, Do-heon Kim, Graham Dorrans, Gianni Zuiverloon og Marek Cech komið til félagsins.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.