18.07.08 - 16:00
Hafliði Breiðfjörð
Ratislav Lazorik í Víði Garði (Staðfest)

Lazorik í leik með Breiðablik á undirbúningstímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Slóvakinn Ratislav Lazorik er genginn í raðir Víðis Garði og fær leikheimild með liðinu á morgun. Hann getur því leikið með Víði gegn Hetti í tólftu umferð 2. deildar á morgun.
Lazorik mætti til æfinga hjá Breiðablik í vor í von um að ganga til liðs við félagið sem hann lék með 1994 og 1995 en ekkert varð af félagaskiptum fyrir Íslandsmótið eða áður en félagaskiptaglugginn lokaði. Hann hefur nú fengið skipti til Víðis.
Lazorik kemur frá Slóvakíu en hann hefur undanfarin ár leikið í Grikklandi. Hann flutti til Íslands í vor og fékk að mæta á æfingar hjá Breiðabliki í gegnum Arnar Grétarsson leikmann liðsins sem er eini leikmaðurinn sem er enn í liðinu síðan hann lék þar.
Lazorik hafði áður leikið hér á landi í sex ár, tvö með Breiðablik, þrjú með Leiftri og eitt ár með KA.
Auk hans fær Ragnar Smári Guðmundsson leikheimild hjá Víði og verður með í leiknum gegn Hetti á morgun.