18.07.08 - 18:18
Magnús Már Einarsson
Stoke kaupir Kitson fyrir metfé (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur keypt framherjann David Kitson frá Reading á 5,5 milljónir punda en það er metfé hjá félaginu.
Þessi 28 ára gamli framherji hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stoke.
,,Ég tel að hann sé markaskorari í eðli sínu með frábæra hæfileika og hann er einn af þeim sem mun leggja gríðarlega hart að sér,\" sagði Tony Pulis stjóri Stoke.
Kitson hefur verið á mála hjá Reading síðan árið 2003 en hann kom til félagsins frá Cambridge United.
Á þessum tíma skoraði Kitson 54 mörk fyrir Reading í 134 leikjum með félaginu.

Heimild: BBC