18.09.08 - 12:43
Davíð Örn Atlason
Ray Wilkins ráðinn aðstoðarþjálfari Chelsea (Staðfest)

Ray Wilkins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ray Wilkins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ray Wilkins hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Chelsea eftir að Steve Clarke fór til West Ham í vikunni.
Wilkins lék með Chelsea í heil sex ár frá 1973 - 1979 og var einnig aðstoðarþjálfari Gianluca VIalli á árunum 1998 - 2000.
Wilkins, sem er 52 ára gamall hóf knattspyrnuferil sinn með Chelsea og spilaði 198 leiki fyrir félagið. Þess má geta að hann varð fyrirliði liðsins átján ára.
Þessi fyrrum enski landsliðsmaður mun aðstoða Luiz Felipe Scolari, Brasilíumanninn sem tók við stjórastöðunni hjá félaginu í sumar.
Wilkins hefur þjálfað aðeins áður, en hann tók við QPR árið 1994 og Fulham árið 1997. Þá var hann líka í þjálfarateymi enska U-21 árs landsliðsins.

Heimild: BBC