Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 18. nóvember 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Rodri: Hefðum getað skorað meira en sex mörk
Mynd: The Athletic
„Við löbbuðum yfir þá á allan hátt," sagði Rodri, miðjumaður Manchester City og spænska landsliðsins, eftir 6-0 burstið gegn Þýskalandi í Þjóðadeildinni í gær.

Spánverjar fóru á kostum í leiknum og völtuðu yfir Þjóðverja. Um er að ræða stærsta tap Þjóðverja frá upphafi.

„Við skoruðum sex en þau hefðu getað verið mun fleiri," sagði Rodri einnig.

Alvaro Morata framherji spænska liðsins sagði eftir leik: „Við fengum tækifæri til að senda sterk skilaboð út í heiminn og við gerðum það."
Athugasemdir
banner
banner
banner