Fotbolti.net
18.12.08 - 14:07
Magnús Már Einarsson

Henrik Bödker í Þrótt (Staðfest)

Henrik Bödker í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Þróttarar hafa samið við danska markvörðinn Henrik Bödker sem lék með Hetti síðastliðið sumar.
Henrik kom fyrst hingað til lands árið 2007 en þá lék hann með ÍBV síðari hluta sumars. Hann gekk síðastliðinn vetur til liðs við Hött og lék með liðinu í annarri deildinni í sumar.

Henrik, sem er 27 ára gamall, mun koma hingað til lands í janúar en auk þess að vera leikmaður hjá Þrótti mun hann sjá um alla þjálfun yngri markmanna félagsins sem og markmanna í meistaraflokki kvenna sem leikur í 1.deild á komandi leiktíð.

Á sínum tíma lék Henrik með AGF í dönsku úrvalsdeildinni og og auk þess Lyngby BK, FC Aarhus og Fremad Amager þar sem hann var meðal annars liðsfélagi Dennis Dannry leikmanns Þróttar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.