19.02.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Örlygur og Logi í Þór (Staðfest)

Örlygur Þór Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Dagsljós

Örlygur Þór Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Dagsljós
Örlygur Þór Helgason og Logi Ásbjörnsson hafa gengið til liðs við Þór.
Báðir leikmennirnir léku með Þór í Soccerademótinu og þeir hafa núna fengið félagaskipti og geta því leikið með liðinu gegn Fjarðabyggð í fyrsta leik Lengjubikarsins um helgina.
Örlygur Þór er uppalinn Þórsari en hann lék síðast með liðinu í efstu deild árið 2002.
Í kjölfarið lék Örlygur í nokkur ár með KA en í fyrra var hann í fríi frá fótbolta eftir að hafa verið spilandi þjálfari hjá Dalvík/Reyni árið 2008.
Logi er markvörður sem hefur staðið á milli stanganna hjá Magna undanfarin þrjú ár en hann mun berjast við Björn Hákon Sveinsson um markvarðarstöðuna hjá Þór.