Fotbolti.net
19.02.10 - 07:25
Magnús Már Einarsson

Símun Samuelsen til HB (Staðfest)

Símun í landsleik með Færeyjum gegn Íslendingum.

Símun í landsleik með Færeyjum gegn Íslendingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Símun Samuelsen skrifaði í gær undir þriggja ára samning við færeysku meistarana í HB.
Símun hefur leikið með Keflavík frá því árið 2005 og verið lykilmaður en hann skoraði þrjú mörk í átján leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

Hann hefur núna samið við HB þar sem Kristján Guðmundsson fyrrum þjálfari Keflvíkinga er við stjórnvölinn.

Kristján hefur verið að styrkja leikmannahópinn en í síðustu viku fékk HB varnarmanninn Þórð Steinar Hreiðarsson til liðs við sig frá Þrótti.

Heimild: Heimasíða HB

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.