Fotbolti.net
19.02.10 - 09:30
Þórður Már Sigfússon

Alexander Söderlund til Lecco (Staðfest)

Alexander Söderlund í leik með FH í fyrra

Alexander Söderlund í leik með FH í fyrra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Norski framherjinn Alexander Söderlund, sem lék með Íslandsmeisturum FH á síðasta ári, er genginn til liðs við ítalska 3. deildarliðið Lecco.
Um er að ræða skammtímasamning en Söderlund var án félags eftir dvölina hjá Hafnarfjarðarliðinu þar sem hann þótti ekki standa undir væntingum, enda skoraði hann einungis 3 mörk í 18 deildarleikjum með liðinu.

,,Samningurinn rennur út í júní en tímabilinu lýkur þann 9. maí. Þá býst ég við því að flytja til Noregs til að læra,” sagði Söderlund við Haugesunds Avis.

Lecco er sem stendur um miðja deild.

Heimild: Haugesunds Avis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.