19.02.10 - 15:02
Magnús Már Einarsson
Rannver Sigurjónsson í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Rannver Sigurjónsson hefur gengið til liðs við Breiðablik en hann kemur til félagsins frá Aftureldingu.
Rannver hefur æft með Breiðablik undanfarna mánuði og hann hefur núna fengið félagaskipti og verður því með Blikum gegn Þrótti í Lengjubikarnum á sunnudag.
Þessi 25 ára gamli kantmaður er uppalinn hjá Breiðablik en hann hóf að leika með liðinu í efstu deild árið 2001 og er núna kominn aftur á heimaslóðir.
Rannver lék í fjögur ár með meistaraflokki Blika áður en hann gekk til liðs við Víking R. árið 2005.
Hann gekk síðan til liðs við Aftureldingu árið 2007 eftir stutt stopp hjá Fjölni.
Hjá Aftureldingu skoraði Rannver fimm mörk tuttugu leikjum í fyrstu deildinni í fyrra en hann var einnig valinn í lið ársins þegar að liðið komst upp úr annarri deildinni árið 2008.