19.02.10 - 17:15
Magnús Már Einarsson
Dalibor Nedic í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

BÍ/Bolungarvík hefur fengið varnarmanninn Dalbor Nedic til liðs við sig frá Víkingi Ólafsvík. Dalibor hefur gert samning við BÍ/Bolungarvík út þetta keppnistímabil en hann kemur til Íslands 15.apríl næstkomandi.
Þessi 35 ára gamli Bosníumaður hefur verið lykilmaður hjá Víkingi undanfarin ár.
Dalibor gekk til liðs við Víking árið 2006 og hefur leikið með liðinu í fyrstu deildinni síðan þá.
Síðastliðið sumar lék Dalibor 21 leik með Víkingi en árið áður lék hann alla 22 leiki liðsins.
Alfreð Elías Jóhannsson, spilandi þjálfari BÍ/Bolungarvíkur, þekkir vel til leikmannsins en þeir hafa verið samherjar hjá Víkingi undanfarin tvö ár.