Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. febrúar 2021 17:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Valgeir „gæti eiginlega ekki verið sáttari" hjá Brentford og dreymir um lokakeppnina
Ég vil auðvitað vera valinn í lokahópinn.
Ég vil auðvitað vera valinn í lokahópinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
 Í staðinn fyrir að rífa kjaft við dómarann í margar mínútur þá ákvað ég að einbeita mér að leiknum og svo skoraði ég nokkrum mínútum seinna
Í staðinn fyrir að rífa kjaft við dómarann í margar mínútur þá ákvað ég að einbeita mér að leiknum og svo skoraði ég nokkrum mínútum seinna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég er virkilega sáttur við þann fjölda marka sem ég kom að
Ég er virkilega sáttur við þann fjölda marka sem ég kom að
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég gæti eiginlega ekki verið sáttari.
Ég gæti eiginlega ekki verið sáttari.
Mynd: Brentford
Ég horfi á leikina sem tækifæri fyrir mig til að sanna mig fyrir þjálfurunum í aðalliðinu
Ég horfi á leikina sem tækifæri fyrir mig til að sanna mig fyrir þjálfurunum í aðalliðinu
Mynd: Brentford
Ræddi við Brynjar Björn og Viktor Bjarka á lokadegi gluggans.
Ræddi við Brynjar Björn og Viktor Bjarka á lokadegi gluggans.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Börkurinn er kóngurinn, innan sem utan vallar, ekki flóknara en það
Börkurinn er kóngurinn, innan sem utan vallar, ekki flóknara en það
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: Getty Images
Fyrir mér skiptir ekki máli hvaða stöðu ég spila, eina sem skiptir máli fyrir mig er að byrja leiki.
Fyrir mér skiptir ekki máli hvaða stöðu ég spila, eina sem skiptir máli fyrir mig er að byrja leiki.
Mynd: Brentford
Ég spila oftast í bakverði núna
Ég spila oftast í bakverði núna
Mynd: Brentford
Það hefur gengið mjög vel
Það hefur gengið mjög vel
Mynd: Brentford
Valgeir Valgeirsson gekk í raðir Brentford á lokadegi félagagluggans í október síðastliðnum. Hann er þar að láni frá uppeldisfélaginu HK og getur Brentford nýtt sér forkaupsrétt á Valgeiri á meðan lánssamningum stendur.

Valgeir er átján ára og lék síðasta sumar sitt annað tímabil með HK í efstu deild. Fótbolti.net hafði samband við Valgeir og spurði hann út í HK, Brentford, U21 árs landsliðið og fleira.

Þú hefur talað um skapið á þér áður. Ég er forvitinn hvort þú hafir eitthvað unnið með það undanfarin ár?

„Já, ég hef gert það. Ég er búinn að bæta mig með skapið þó það sé enn til staðar. Ég hef ekki gert neitt sérstakt til að bæta skapið heldur bara sagt við sjálfan mig eftir hvert augnablik, þar sem skapið mitt var ekki á réttum stað, að ég þurfi að bæta mig í skapinu."

„Ég hef reynt að nýta skapið í réttu hlutina, eins og þegar ég fekk gult á móti KR fyrir dýfu. Í staðinn fyrir að rífa kjaft við dómarann í margar mínútur þá ákvað ég að einbeita mér að leiknum og svo skoraði ég nokkrum mínútum seinna."


Þú sagðir við mig í fyrra að þú vildir vinna með stöðugleikann í þínum leik, fannst þér þú ná því á liðnu tímabili?

„Mér fannst ég ekki ná því jafn vel og ég vildi gera. Mér fannst þó mikill munur á stöðugleika mínum ef ég ber fyrra árið í efstu deild við það seinna. Það var markmið að ná upp meiri stöðugleika en á mínu fyrsta tímabili og mér fannst ég hafa náð því þótt ég vildi gera betur."

Þú skoraðir meira en árið á undan, ertu sáttur við þann fjölda marka sem þú komst að?

„Ég er virkilega sáttur við þann fjölda marka sem ég kom að, fjögur mörk og fimm stoðsendingar. Ég hefði viljað meira vegna þess að ég setti mér markmið að skora sjö mörk og gefa sjö stoðsendingar. En síðan þegar maður horfir til baka á tímabilið þá voru einungis spilaðir átján leikir í staðinn fyrir 22, ég spilaði suma leiki í bakverði og var einnig meiddur í sumum leikjum."

Ertu í heild sáttur við síðasta tímabil með HK, bæði þína persónulegu frammistöðu og svo árangur liðsins?

„Ég er sáttur með mína frammistöðu á síðasta tímabili þó að ég vildi gera betur. Ég var sáttur með flest allt sem ég gerði en hefði mátt sýna meiri stöðugleika sem mér finnst vera einn mikilvægasti hluti af fótbolta."

„Ég var ósáttur með frammistöðu liðsins vegna þess að við gátum gert mikið betur á tímabilinu. Allir leikmenn liðsins vita það og við vorum allir ósattir með 9. sætið. Það sem vantaði hjá okkur sem lið var meiri stöðugleiki. Ef við hefðum sýnt hann og náð að tengja sigra saman þá hefði þetta verið öðruvísi tímabil hjá okkur."


Snúum okkur að Brentford. Hvaða stöður ertu að spila og hvaða kerfi spilar liðið?

„Ég spila oftast í bakverði núna. Það eru 2-3 ástæður fyrir því en helsta ástæðan er sú að það er aðeins einn bakvörður hjá okkur og hann er alltaf með aðalliðinu. Þeir hjá Brentford vissu að ég gæti spilað bakvörð. Síðan ég hef komið hingað hef ég einnig spilað á baðum köntum, framarlega á miðju og svo sem bæði hægri bakvörður og vængbakvörður. Við spilum 3-4-3 eða 4-3-3, fer svolítið eftir því hvort allir miðverðirnir eru heilir."

Ég spurði þig fyrir tæpu ári út í mögulegt val á hægri bakverði eða hægri kantinum. Ertu einhverju nær hvora stöðuna þú vilt gera algjörlega að þinni?

„Nei, ekki ennþá og ég er ekkert að pæla í því. Fyrir mér skiptir ekki máli hvaða stöðu ég spila, eina sem skiptir máli fyrir mig er að byrja leiki. Ég held að ég muni spila fleiri en eina stöðu þegar ég verð eldri þannig ég er ekkert að velja stöðu til að gera að minni."

Hvað geriru á milli æfinga og leikja, ertu í fjarnámi eða er það bara eldgamli FIFA?

„Ég er í fjarnámi. Ef ég er ekki að læra þá fer mesti tíminn í Netflix, Youtube og Playstation. Síðan hringir maður tvisvar í viku í Djuric til að taka gott spjall."

Tímasetningin þegar þú fórst út, mikil tilviljun auðvitað að þú endar á að missa ekki af leik þar sem mótinu var slaufað. Líturu á það sem mikla heppni að missa ekki af leik?

„Já, það var þvílik heppni fyrir mig. Markmiðið mitt fyrir tímabilið var að klára tímabilið með HK, útskrifast svo úr menntaskóla og síðan fara í atvinnumennsku."

„Svo kom þetta upp með Brentford og ég ætlaði fyrst ekki að fara vegna þess að deildin var ennþá í gangi. Ég tók gott spjall við Brynjar og Viktor um Brentford á lokadegi gluggans og þeir töldu að best væri fyrir mig að fara út."

„Auðvitað hlustar maður á þá og skrifa ég undir seinna um daginn. Síðan nokkrum dögum seinna sá ég að það var hætt við að klára mótið."


Hefur það breytt einhverju með skólann að þú sért farinn út? Hvenær er stefnt á útskrift?

„Þetta hefur haft lítil áhrif á skólann, ég tek aðeins færri áfanga í fjarnámi. Stefnan er áfram sett á útskrift á þessu ári en óvíst hvenær."

Hvernig er þetta núna hjá Brentford, megið þið alveg æfa og spila? Hvaða takmarkanir eru í kringum boltann?

„Það má bæði æfa og spila en það eru þó búnir að vera færri leikir hjá okkur núna eftir útgöngubann. Við erum ekki með búningsklefa eins og er og megum ekki vera fleiri en átta í ræktinni."

„Reglurnar voru svo hertar á æfingasvæðinu eftir að leikmenn greindust með Covid sem endaði með því að því var lokað. Það var svo opnað aftur og er opið núna."


Hvernig hefur gengið í þeim leikjum sem þú hefur spilað með Brentford B?

„Það hefur gengið mjög vel, ég hef byrjað flest alla leiki og hef ekki tapað mörgum leikjum síðan ég kom hingað. Við erum með virkilega sterkt lið og það eru fimm leikmenn í liðinu búnir að fá sinn fyrsta leik með aðalliðinu síðan ég kom."

Ertu sáttur með þennan tíma til þessa?

„Ég gæti eiginlega ekki verið sáttari. Mér hefur gengið nógu vel til þess að fá æfingar með aðalliðinu sem ég er mjög ánægður með. Síðan hef ég bætt mig í þeim hlutum sem ég hef þurft að bæta mig í, bæði styrk og hraða sem dæmi. Mér líður mjög vel hérna."

Er ekkert skrítið að spila bara æfingaleiki?

„Jú, það er skrítið en ég horfi ekki beint á þetta sem æfingaleiki. Ég horfi á leikina sem tækifæri fyrir mig til að sanna mig fyrir þjálfurunum í aðalliðinu. Þeir horfa á hvern einasta leik sem við spilum og síðan fá leikmenn tækifæri með aðalliðinu út frá frammistöðu í leikjunum."

Hefuru oft æft með aðalliði félagsins?

„Ég hef fengið að fara á tvær æfingar með aðalliðinu. Ég hef einnig fengið að vera með aðalliðinu í liði á móti B-liðinu. Stundum spilar B-liðið á móti leikmönnum úr aðalliðinu sem hafa ekki fengið margar mínútur eða hafa verið meiddir. Það er gert til þess að byggja upp leikformið þeirra."

Býstu við því að Brentford nýti sér forkaupsréttinn og kaupi þig? Finnst þér þú vera að nálgast aðalliðið eða ertu alveg rólegur með það?

„Já, ég býst við því en maður veit aldrei. Ég veit að ég er nálægt aðalliðinu því ég hef fengið að vita það en er samt rólegur yfir því. Ég er ekki að drífa mig að reyna festa mig í aðalliðinu. Ef ég held áfram að gera vel með B-liðinu mun ég fá fleiri æfingar með aðalliðinu."

Hefuru eitthvað náð að kynnast London síðan þú fórst út?

„Ég náði að kynnast borginni eitthvað áður en útgöngubannið kom. Eftir að hertari samkomureglur tóku gildi hef ég haldið mig inni."

Býrðu ennþá á hótelinu, ertu kominn með þvottavél?

„Ég bý ennþá á hóteli en er kominn á annað núna. Það er þvottavél á nýja hótelinu og ég get þvegið fötin mín almennilega núna."

Það hefur komið fram að þú gast valið milli Brentford og Venezia síðasta haust. Talaðiru eitthvað við Íslendingana hjá félögunum áður en þú tókst ákvörðun?

„Þetta gerðist allt svo fljótt að mér datt ekkert í hug að hafa samband við þá en ég náði þó að ræða smá við Patrik um Brentford. Eftir að ég skrifaði undir og byrjaði á mínum fyrstu æfingum höfum við Patrik haldið góðu sambandi."

Snúum okkur aðeins að U21 landsliðinu. Það var talsverð umræða í kringum valið á hópnum síðasta haust. Truflaði þessi umræða, um hvernig þið Valgeirarnir voru kallaðir inn í hópinn, þig eitthvað?

„Nei, það truflaði mig ekki neitt."

Er mikill heiður að vera valinn? Þú varst svo aftur í hópnum fyrir lokaleikina í riðlinum, var vel fagnað eftir sigurinn gegn Írlandi?

„Það er alltaf heiður að vera valinn í landsliðið. Já, það var gríðarlega mikill fögnuður eftir sigurinn."

Ertu með einhverja drauma um að vera valinn í lokahópinn?

„Já, ég er með slíka drauma, ég vil auðvitað vera valinn í lokahópinn."

Að öðru: hver var svona þín helsta fyrirmynd þegar þú varst að byrja í boltanum og fram í meistaraflokk?

„Það er og var Cristiano Ronaldo."

Af hverju Ronaldo? Hvað hefuru tekið frá Ronaldo og reynt að nýta í boltanum eða í lífinu?

„Það sem hann gerði til þess að komast á þann stað sem hann er í dag gerir hann að þeirri fyrirmynd sem hann er. Það sem ég tók frá honum eru aukaæfingarnar. Ég hef nýtt mér það mikið og það hefur hjálpað mér að komast á þann stað sem ég er á í dag."

Að lokum langar mig aðeins að spyrja þig út í Ásgeir Börk. Þú komst inn á að hann var sá liðsfélagi sem hafði komið þér mest á óvart. Hvernig er að hafa svona leiðtoga með sér í liði? Er hann mjög peppandi?

„Það er geggjað og það var mjög þægilegt að hafa hann oftar en ekki við hliðin á sér í leikjum. Hann var ekki endilega í því að leiðbeina mér hvar ég ætti að vera því ég vissi mitt hlutverk. Það sem hann gerði var að hvetja mig til að halda áfram ef ég gerði mistök og hrósa mér þegar ég gerði vel. Það hjálpaði mér mikið og jók sjálfstraust mitt. Börkurinn er kóngurinn, innan sem utan vallar, ekki flóknara en það," sagði Valgeir að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner