19.03.12 - 15:14
Elvar Geir Magnússon
Hjálmar Þórarinsson úr Fram í Berserki (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson


Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Sóknarmaðurinn Hjálmar Þórarinsson hefur fengið félagaskipti úr Fram yfir í 3. deildarlið Berserkja og mun spila með liðinu í komandi leikjum í Lengjubikarnum og jafnvel í sumar.
Berserkir eru varalið Víkings í Reykjavík.
Berserkir eru varalið Víkings í Reykjavík.
Formaður Berserkja segir á Twitter að þessi 26 ára framherji gæti snúið aftur yfir í herbúðir Fram áður en Íslandsmótið fer af stað.
Hjálmar er uppalinn hjá Þrótti en hann fór síðan út til skoska liðsins Hearts.
Hann hefur verið í herbúðum Fram síðan 2007 en lék lítið með liðinu í fyrra af persónulegum ástæðum.
Hjálmar er uppalinn hjá Þrótti en hann fór síðan út til skoska liðsins Hearts.
Hann hefur verið í herbúðum Fram síðan 2007 en lék lítið með liðinu í fyrra af persónulegum ástæðum.
