Fotbolti.net
19.04.12 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson

Lasse Schone til Ajax (Staðfest)

Stuðningsmenn Ajax.

Stuðningsmenn Ajax.

Canon

Mynd: Getty Images

Ajax hefur gengið frá kaupunum á danska miðjumanninum Lasse Schone.
Schone kemur frá NEC Nijmegen á frjálsri sölu eftir tímabilið, en hann verður þá samningslaus. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Ajax, en Schalke, Feyenoord og FC Twente föluðust einnig eftir undirskrift kappans.

Hann á 8 leiki á bakinu með danska landsliðinu og skoraði meðal annars fyrra mark Dana í 2-0 sigri þeirra á Íslendingum á Laugardalsvellinum síðasta sumar.

Schone hefur einnig leikið hátt í 200 deildarleiki í efstu deild í Hollandi, en hann lék með De Graafschap áður en hann gekk í raðir NEC árið 2008.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.