Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 19. apríl 2021 08:30
Aksentije Milisic
Greenwood varar City við: Getur allt gerst
Mynd: Getty Images
Mason Greenwood, sóknarmaður Manchester United, hefur verið að spila vel að undanförnu og er farinn að skila inn mörkum.

Greenwood byrjaði tímabili ekki vel og var mjög rólegur framan af. Nú hefur hann hins vegar verið að hrökkva í gang upp á síðkastið og skoraði þessi ungi leikmaður tvennu í góðum sigri United gegn Burnley í dag.

Greenwood segir að United sé ekki búið að gefa titilinn upp á bátinn og hefur hann varað Manchester City við.

„Þú getur aldrei verið viss, þeir gætu misstigið sig. Það getur allt gerst. Vonandi tapa þeir eitthvað af stigum en við verðum að einbeita okkur að því að vinna okkar leikir," sagði Mason.

Solskjær tók í svipaðan streng og Greenwood eftir leikinn í dag.

„Það er ólíklegt en furðulegri hlutir hafa gerst í fótboltanum. Við verðum bara að gera okkar vinnu og sjá svo til," sagði Norðmaðurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner