19.05.09 - 10:51
Magnús Már Einarsson
Fabio Cannavaro til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fabio Cannavaro, fyrirliði ítalska landsliðsins, mun ganga til liðs við Juventus frá Real Madrid þann 1.júlí næstkomandi.
Juventus greindi frá þessu í yfirlýsingu í dag en hinn 35 ára gamli Cannavaro hefur gert eins árs samning við félagið.
Stuðningsmenn Juventus eru ekki paránægðir með að Cannavaro sé að koma aftur til félagsins en þeir voru óánægðir þegar hann fór til Real Madrid árið 2006.
Juventus hafði þá verið dæmt niður í Serie B og á meðan Cannavaro skipti um félag voru leikmenn eins og Alessandro Del Piero og Gianluigi Buffon áfram hjá Juve.
Lítill hópur stuðningsmanna hefur mótmælt komu Cannavaro á undanförnum leikjum liðsins eftir að ljóst var að hann ætti í viðræðum við félagið.
Ýmislegt er í gangi í herbúðum Juventus þessa dagana en í gær var Claudio Ranieri rekinn sem þjálfari og þá er félagið að reyna að fá Diego frá Werder Bremen.

Heimild: Reuters