Besta deild kvenna: Alda Ólafs kom Fram upp úr fallsæti

Alda Ólafs skoraði bæði mörk Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur er á botninum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alda Ólafs skoraði bæði mörk Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. 1 - 2 Fram
0-1 Alda Ólafsdóttir ('15 )
1-1 Harpa Helgadóttir ('51 , sjálfsmark)
1-2 Alda Ólafsdóttir ('78 )
Lestu um leikinn

Fram vann sinn þriðja leik í röð þegar liðið lagði Víking að velli, 2-1, í Bestu deild kvenna í Víkinni í dag.
Fram hafði aðeins unnið einn leik áður en júlímánuður gekk í garð en sigrarnir eru nú orðnir fjórir.
Leikurinn fór rólega af stað en Alda Ólafsdóttir braut ísinn á 15. mínútu. Langur bolti var sendur inn fyrir vörn Víkings á Öldu, sem tók hann vel með sér, lék á Áslaugu Dóru og lagði boltann snyrtilega í fjærhornið.
Gestirnir voru hársbreidd frá því að tvöfalda forystuna á 32. mínútu þegar Taylor Hamlett komst í dauðafæri en Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir varði frábærlega.
Fram leiddi 1-0 í hálfleik en Víkingur jafnaði þegar aðeins sex mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Bergdís Sveinsdóttir tók þá hornspyrnu sem Harpa Helgadóttir, leikmaður Fram, skallaði í slána og þaðan í eigið net. Þar virtist misskilningur á milli hennar og Emmu Young reynast dýrkeyptur.
Tólf mínútum fyrir leikslok fékk Fram aukaspyrnu eftir að Kristín Erla O. Johnson togaði Taylor niður þegar hún var við það að sleppa í gegn. Kristín fékk að líta gula spjaldið og upp úr aukaspyrnunni skoraði Fram sigurmarkið.
Una Rós Unnarsdóttir fékk boltann aftur og sendi hann fyrir markið á Öldu. Hún tók boltann út í teiginn, skildi tvo leikmenn Víkings eftir og þrumaði honum í nærhornið.
Víkingar lögðu allt í sölurnar í leit að jöfnunarmarki. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir sendi stórhættulegan bolta fyrir markið en enginn náði að reka tána í hann. Heimakonur kölluðu einnig eftir vítaspyrnu vegna meintrar hendi á Hildi Maríu Jónasdóttur en Hallgrímur Viðar Arnarson, dómari leiksins, lét sér fátt um finnast. Víkingar voru allt annað en sáttar og létu hann heyra það.
Jöfnunarmarkið lét hins vegar ekki sjá sig og Fram fagnaði sínum þriðja sigri í röð. Liðið lyfti sér úr fallsæti og upp í sjötta sætið með 13 stig. Víkingur situr á botninum með tíu stig og hefur ekki unnið leik síðan í lok maí.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 11 | +21 | 26 |
| 2 | Breiðablik | 11 | +16 | 24 |
| 3 | Stjarnan | 11 | +9 | 21 |
| 4 | ÍBV | 12 | -1 | 20 |
| 5 | Þróttur R. | 11 | -3 | 13 |
| 6 | Fram | 12 | -12 | 13 |
| 7 | Þór/KA | 12 | -5 | 12 |
| 8 | Grindavík/Njarðvík | 11 | -9 | 12 |
| 9 | Valur | 11 | -4 | 10 |
| 10 | Víkingur R. | 12 | -12 | 10 |