Fotbolti.net
19.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Harry Winks flytur til Sardiníu (Staðfest)

Harry Winks flytur til Sardiníu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Enski miðjumaðurinn Harry Winks, sem er 30 ára gamall og lék tíu landsleiki fyrir England á árunum 2017 til 2020, er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Cagliari á Ítalíu.
Harry Winks á leið aftur til Ítalíu
TENGT EFNI

Harry Winks á leið aftur til Ítalíu

Winks flytur því til Sardiníu og mun reyna aftur fyrir sér í Serie A eftir að hafa leikið með Sampdoria á láni tímabilið 2022-23.

Winks kemur úr röðum Leicester City eftir óvænt fall liðsins niður í League One deildina. Hann er uppalinn hjá Tottenham og lék yfir 200 leiki fyrir félagið áður en hann skipti til Leicester.

Cagliari endaði með 43 stig á síðasta deildartímabili, níu stigum fyrir ofan fallsvæðið. Félagið er búið að missa Gianluca Gaetano til Atalanta en hefur gengið frá kaupum á Kingstone Mutandwa. Þar að auki eru Jacopo Fazzini og Alessandro Romano komnir á lánssamningum frá Fiorentina og Roma.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Harry Winks flytur til Sardiníu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.