Fotbolti.net
19.07.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ísland í dag - Fjórir leikir í Bestu deildunum

Ísland í dag - Fjórir leikir í Bestu deildunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslensku fótboltahelginni lýkur á fjórum spennandi leikjum í efstu deildum karla og kvenna.
Í karlaflokki er KR eina toppbaráttuliðið sem mætir til leiks. Vesturbæingar sitja í þriðja sæti með 32 stig eftir 15 umferðir og þurfa á sigri að halda til að endurheimta annað sætið og reyna að setja pressu á Íslandsmeistara Víkings R., sem töpuðu óvænt gegn botnliði Þórs í gær.

KR tekur á móti Stjörnunni sem er með 15 stig, aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. ÍBV og KA eru á svipuðum slóðum og Stjarnan og eigast einnig við í dag.

Í kvennaflokki eigast Víkingur R. og Fram við í mikilvægum fallbaráttuslag áður en botnlið Þórs/KA tekur á móti nýliðum ÍBV sem eru að reynast spútnik lið tímabilsins. Eyjakonur eru partur af fjögurra liða toppbaráttu ásamt FH, Breiðabliki og Stjörnunni og geta þær komist upp í þriðja sæti með sigri.

ÍBV er með 20 stig eftir 11 umferðir, sex stigum á eftir toppliði FH.

Besta karla
14:00 ÍBV-KA (Hásteinsvöllur)
16:00 KR-Stjarnan (Meistaravellir)

Besta kvenna
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
16:00 Þór/KA-ÍBV (VÍS völlurinn)
Ísland í dag - Fjórir leikir í Bestu deildunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2Fram15+1333
3KR15+1732
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.