Tottenham bjartsýnt á að landa Savinho - Real Madrid vill ekki fá Rodri

Savinho til Tottenham?

Mynd: EPA

Real Madrid ætlar ekki að fá Rodri

Mynd: EPA

Savinho til Tottenham?

Mynd: EPA

Tottenham hefur enn mikinn áhuga á brasilíska vængmanninum Savinho, Real Madrid ætlar ekki að fá Rodri og AC Milan er með Phil Foden ofaralega á óskalistanum. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Tottenham hefur enn trú á því að félagið geti landað Savinho (22) frá Manchester City. (Fabrizio Romano)
Real Madrid ætlar ekki að reyna að fá spænska miðjumanninn Rodri (30) frá Man City í sumar. (Athletic)
AC Milan er með Phil Foden (26), leikmann Man City, á óskalistanum. (Tuttosport)
Það veltur þó á því hvort Milan takist að selja portúgalska vængmanninn Rafael Leao (27). (Tuttosport)
Ben Nelson (22), varnarmaður Leicester City, hefur tilkynnt félaginu að hann vilji yfirgefa það. West Ham hefur áhuga á Englendingnum. (Mail)
Englandsmeistarar Arsenal eru að ganga frá samningi við enska varnarmanninn Elijah Upson (18), sem hafnaði nýju samningstilboði frá Tottenham. (Fabrizio Romano)
Portúgalski miðjumaðurinn Joao Palhinha (31) snýr aftur til Bayern München og hefur undirbúningstímabilið með liðinu. Ekkert er hins vegar til í sögusögnum um að hann sé á leið til Aston Villa. (Sky)
Liverpool er að ganga frá kaupum á kólumbíska miðjumanninum Samuel Martinez (17) frá Atletico Nacional fyrir 750 þúsund pund. (Athletic)
Real Madrid, Barcelona og Atletico Madrid hafa áhuga á argentínska miðverðinum Cristian Romero (28), sem er á mála hjá Tottenham. (Teamtalk)
Juventus er í bílstjórasætinu í kapphlaupinu um bandaríska framherjann Folarin Balogun (25), sem er á mála hjá Mónakó. Borussia Dortmund og Sunderland hafa einnig áhuga. (Mundo Deportivo)
Chelsea er áfram í viðræðum um franska miðvörðinn Maxence Lacroix (26). Crystal Palace hefur sett 70 milljóna punda verðmiða á leikmanninn, sem tefur fyrir félagaskiptunum. (Caught Offside)
Juventus hefur enn áhuga á Richarlison (29), framherja Tottenham. (Gazzetta dello Sport)
Everton er talið líklegast til að landa enska vængmanninum Jaden Philogene (24) frá Ipswich. (Football Insider)