Selma Dögg komin aftur á völlinn: „Við getum komið okkur upp úr þessari holu"

Selma Dögg Björgvinsdóttir sneri aftur á völlinn eftir barnsburð og lék síðustu 20 mínúturnar í tapi Víkings gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selma Dögg Björgvinsdóttir sneri aftur á völlinn eftir barnsburð og lék síðustu 20 mínúturnar í tapi Víkings gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selma Dögg Björgvinsdóttir sneri aftur á völlinn eftir barnsburð þegar hún lék sínar fyrstu mínútur í Bestu deildinni í sumar þegar hún kom inn á 69. mínútur í 2-1 tapi Víkings gegn Fram í 13. umferð Bestu deild kvenna í dag. Endurkoman var kærkomin fyrir Selmu, sem ætlar sér að byggja ofan á mínúturnar og klára tímabilið með stæl.
„Það var geggjað að fá mínútur í dag. Nú þarf maður bara að byggja ofan á þetta. Markmiðið er að ná að klára tímabilið með stæl,“ sagði Selma í samtali við Fótbolta.net eftir leik.
Víkingur hefur átt erfitt uppdráttar eftir hlé og tapað fyrstu þremur leikjum sínum. Selma segir markmiðin þó enn skýr og að liðið ætli sér að vinna sig út úr erfiðri stöðu.
„Við erum ennþá með skýr markmið og erum að gera allt sem við getum til að þétta hópinn og byggja ofan á styrkleikana okkar. Við þurfum allar að líta inn á við og ég hef trú á að við getum komið okkur upp úr þessari holu sem við erum í.“
„Við missum aldrei trúna. Við erum búnar að vera að byggja þetta upp síðustu ár og förum ekkert að hætta því núna. Nú þurfa allar að stíga upp og sýna hvað í okkur býr. Fleiri þurfa að sýna leiðtogahæfni. Við förum ekkert að gefast upp núna.“
Selma taldi leikinn gegn Fram hafa verið jafnan og að úrslitin hefðu getað fallið hvoru megin sem var. Víkingur setti mikla pressu á gestina undir lokin en náði ekki að jafna.
„Þetta hefði getað fallið báðum megin. Við þurfum að fara að klára færin okkar og skora fleiri mörk. Maður vinnur ekki nema að skora. Þetta er ógeðslega svekkjandi en við komum vonandi sterkari upp úr þessu.“
Félagaskiptaglugginn er að opna en Selma hafði ekki heyrt hvort frekari liðsstyrkur væri á leiðinni.
„Við erum með frábæran hóp og eigum alveg að geta klárað þetta með hópinn sem við erum með. Það væri auðvitað frábært að fá eitthvað en ég hef ekki heyrt neitt.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


