Fotbolti.net
19.08.08 - 12:09
Hörður Snævar Jónsson

Andrew Davies til Stoke (Staðfest)

Davies í leik með Middlesbrough.

Davies í leik með Middlesbrough.

Canon

Mynd: Getty Images

Stoke City hefur gengið frá kaupunum á Andrew Davies frá Southampton en kaupverðið er ekki gefið upp.
Davies skrifaði undir fjögurra ára samning við Stoke eftir að hafa staðið læknisskoðun hjá félaginu.

Hann er sjötti leikmaðurinn sem Stoke fær í sumar en fyrir hafði liðið fengið þá Dave Kitson, Seyi Olofinjana, Amdy Faye, Thomas Sorensen og Abdoulaye Faye.

Stoke sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni hafa verið að reyna að styrkja vörn sína en Davies er varnarmaður.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.